1.2.2023

Sérstök umræða um skýrslu GREVIO um Ísland fimmtudaginn 2. febrúar

Sérstök umræða um skýrslu GREVIO um Ísland verður á Alþingi fimmtudaginn 2. febrúar um kl. 13:30.

Málshefjandi er Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og til andsvara verður forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir.

Skýrsla GREVIO er stöðuskýrsla um framfylgd samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúl-samningsins).

ArndisAnna_KatrinJakobs